logo

Leita:

Ungdómsupplyfting í Gónhól á Eyrarbakka um helgina

Skrifað af Administrator on 24.08.2008 at 13:26
Forsíða >>

Það er mikið líf og fjör í nýju menningarmiðstöðinni á Eyrarbakka og einbeitingin skín af litlum andlitum sem rækta með sér listræna hæfileika í nýrri menningarmiðstöð í Gónhól á Eyrarbakka.

Um helgina standa yfir uppbyggingardagar fyrir ungdóminn í Gónhól á Eyrarbakka. Á laugardag verður 2.hluti Myndlistarkeppninnar en sá 1. fór fram í maí sl. Keppt verður í 3 aldursflokkum og er myndefnið að þessu sinni ; Uppáhaldsdýrið mitt. Dómari verður Þórdís Þórðardóttir myndlistarkona en hún er með sýningu í Gónhól um þessar mundir.

Vegleg verðlaun verða veitt og afhending þeirra fer fram á sunnudeginum sem einnig verður tileinkaður börnunum. Þá verður tískusýning á barnafatnaði, götuleikhús og margt skemmtilegt í boði fyrir unga og aldna. Allir krakkar, ömmur og afar fá fría sölubása þessa helgi en börnin hafa verið dugleg að taka til í geymslum foreldranna og  koma  með gömul leikföng og föt af sjálfum sér til þess að selja í Gónhól.

Núna standa  yfir  myndlistarsýningar, litríkir  sölubásar og prúttmarkaður en að auki eru  margir einstakir og fallegir fornbílar  til sýnis, leigu og sölu í Gónhól sem er opinn allar helgar í sumar frá 13-17.

Back