Thomson bíllinn |
| Skrifað af Administrator on 24.08.2008 at 13:31 |
Fyrsti bíllinn á Íslandi, sem kenndur er við Ditlev Thomsen, kaupmann og konsúl, var fransk-þýskur af svonefndri Cudell-gerð. Alþingi samþykkti árið 1903 að veita 2.000 kr. styrk til að flytja inn bifreið og taldi ráðlegast að einkaaðili stæði fyrir því. Thomsen kaupmaður varð fyrir valinu og sá hann um rekstur bifreiðarinnar. Þorkell Þ. Clementz varð fyrsti bílstjóri Íslendinga, hann kenndi Tómasi Jónssyni að aka og saman ferðuðust þeir um takmarkaða vegi landsins, meðal annars til Eyrarbakka.
Nú hefur Sverrir Andrésson hagleiksmaður á Selfossi endurgert Thomsens bílinn og ákveðið hefur verið að hann komi á Eyrarbakka næstkomandi sunnudag og þá verður mikil hátíð á Bakkanum. Bíllinn verður til sýnis í Gónhól á laugardaginn 5.júlí en á sunnudag mun honum ekið út og að Húsinu þar sem prúðbúnar konur og puntaðir menn munu taka á móti honum og sögð verður sagan af því þegar Thomsen kom á Eyrarbakka fyrir rúmum 100 árum. Thomsensbíllinn varð líka fyrsti leigubíll landsins. Menn gátu til dæmis keypt ferðir niður Bakarabrekku og í Austurstræti á 25 aura, að því tilskildu að þeir ýttu bifreiðinni fyrst upp brekkuna! En sem betur fer eru ekki miklar brekkur á Eyrarbakka og fólki verður boðið að taka rúnt um bæinn í Thomsens bílnum og fleiri fallegum fornbílum að því tilskyldu að það sé spariklætt, helst í anda aldamótanna en þó mun hattur á dömum og þverslaufa á herrum duga.
Inga Lára Baldvinsdóttir verður með myndir af Thomsensbílnum í glugganum á Laugabúð og félagar úr Bifreiðaklúbbi Suðurlands sýna bílamyndir í Gónhól. Næstu helgar verður svo áfram boðið á rúntinn í Fornbílum á Eyrarbakka.