logo

Leita:

Suðurlandsborgarinn 2009

Skrifað af Anna Árnadóttir on 11.05.2009 at 11:04
Forsíða >>

Suðurlandsborgarinn 2009
Keppni um besta Sunnlenska hamborgarann

Haldin á Vori  í Árborg á  Gónhól  Eyrarbakka 23. maí 2009.  Markmið keppninnar er að sýna fram á að allir hamborgarar eru ekki dæmigerðir vegaborgarar.   Að hægt sé  að nýta Matarkistu Suðurlands til að gera gómsætan hamborgara úr okkar góða hráefni s.s. kjöti, fisk, grænmeti, kryddjurtum, mjólkurvörum ofl.

Að velja á besta hamborgarann úr sunnlensku hráefni í 1.-3. sæti og einnig frumlegasta hamborgarann og þann sunnlenskasta.

Reglur


Dómarar


Vægi dóma

Uppskrift-teikning  10%
Hér er tekið tillit til uppskriftar og teikningar.

Sköpun  20%
Hér er verið að horfa til hugmyndar og sköpunar réttarins og tengingu við
Suðurland og  matreiðsluhefða í héraðinu.

Framsetning 20%
Hér er tekið tillit til framsetningar, litar og samsetningar hráefnis

Bragð 50%
Hér  er tekið tillit til þess að bragð sé í samræmi við hráefni og hefðir.
Metið salt,sýra,sæta og remma.
Metin er eldun.


Skráning/keppnisgjald
Skráning er  hjá Ingu Þyri e-mail ingak@islandia.is fyrir 15.maí
Keppnisgjald/staðfestingargjald kr. 2000.- leggist inn á reikning 1169-26-000601
Kt. 660109-0480
Skýring: veitingastaður/framleiðandi-nafn

Back