logo

Leita:

Menningarráð veitir Aldamótaþorpinu styrk:

Skrifað af Anna Árnadóttir on 11.05.2009 at 13:50
Forsíða >>

 
Menningarráð Suðurlands veitti verkefninu aldamótaþorpið og Dansk Íslenska sögusetrinu, tveggja milljóna styrk á glæsilegri menningarhátíð í Vestmannaeyjum þann 7.maí.sl.
Þetta gerir okkur kleyft að hefja framkvæmdir við uppbygginguna strax í maí og við þökkum innilega stuðninginn
 

Líkan Finns Arnars og Þórarins Blöndal er til sýnis hjá okkur á kaffihúsinu Gónhól og það mun svo verða hægt að fylgjast með framkvæmdum í sumar inni í stóra salthúsinu okkar þegar farið verður að smíða eftir líkaninu Aldamótaþorpið.

Í þorpinu verður reynt að líkja sem mest eftir gamla tímanum bæði með verzlunum er í húsunum verða, og klæðnaði þeirra sem þar verða.  Þannig má búast við að vaðmálsbuxur og föðurlönd verði aðaltískan, og í staðinn fyrir buxnabelti komi snærisspottar.

Back