logo

Leita:

Markaðurinn Opnar

Skrifað af Anna Árnadóttir on 11.05.2009 at 11:00
Forsíða >>

Hattadömur, handstúkur og fleiri hagar og laghentar sunnlenskar dömur sýndu og seldu handverkið sitt og Jón Ingi opnaði sína árlegu vorsýningu sem mun standa út þennan mánuð. Þetta er 35. sýning Jóns og þarna kveður við nýjan tón eða eins og Árni Valdimarsson sagði í ræðu við opnunina þann 1.maí: ,, Jón er enn að sýna nýjar víddir í myndsköpun sinni og eru verk hans gott dæmi um þá auknu víðsýni sem við öðlumst með aldrinum. Þannig eru myndir Jóns enn dýpri og sterkari en nokkru sinni fyrr. Við óskum Jóni Inga til hamingju með sýninguna."

Gónhóll mun brydda upp á mörgum skemmtilegu í sumar og það verður eitthvað við allra hæfi, fornbílasýningar, flugdrekakeppni, fegurðarsamkeppni kúa, listasmiðjur og sandkastalakeppni er eitthvað sem má búast við en fastir liðir verða grænmetismarkaður, kjöt, fiskur , heimabakkelsi, sultur og markaðstorgið góða.

Líkan af Þorpinu okkar sem á að byggja inni í stóra saltfisksalnum er til sýnis á kaffihúsinu þar sem ljúfir tónar og ilmandi kökur gleðja hjartað...og budduna...því þetta er ódýrasta kaffihús á landinu.

Verið velkomin til okkar allar helgar í sumar frá föstudegi til sunnudags kl. 13.-17

Back