Hvað er heilun? |
![]() |
| Skrifað af Anna Árnadóttir on 18.05.2009 at 10:36 |
| Forsíða >> |
Hvað er heilun?
Kristján Viðar Haraldsson heldur fyrirlestur á Gónhól þriðjudaginn 26. maí kl. 17.30.
Kristján Viðar mun varpa ljósi á marga þætti varðandi þetta
áhugaverða viðfangsefni.
- Leitar þú að jafnvægi, andlegu og/eða líkamlegu?
- Ertu að lenda í sömu vandamálunum aftur og aftur?
- Ef svarið er já, þá getur heilun hugsanlega gert eitthvað fyrir þig?
- Hver eru tengslin milli sálrænna, líkamlegra og orkulegra þátta og hvernig getur sú þekking hjálpað þér til að líða betur?
- Gerðar verða æfingar sem hjálpa þér að komast í betra samband við þitt eigið orkukerfi.
Fjallað verður um uppbyggingu orkukerfis mannsins og hvernig við getum haft áhrif á það á meðvitaðan hátt.
Verð kr.1.500,-
Kristján Viðar Haraldsson er með diploma og bachelor gráðu í Brennan heilunartækni frá Barbara Brennan School of Healing sem er einn elsti og virtasti heilunarskóli heims.
Auk þess er hann með Bachelor gráðu í sálarfræði frá Háskóla Íslands, og með margra ára reynslu sem ráðgjafi og íþróttaþjálfari.
Back