Gónhóll elskar jólin og er nú lagstur undir feld með heitt súkkulaði, að sjálfsögðu ekta Siríus plötubræðing, og margar góðar jólabækur. Eldurinn logar í arninum, Bing Crosby er á grammifóninum og jólabjöllurnar klingja. Nú fellur drífan til jarðar, þung og falleg snjókornin þekja jörðina og það húmar að.....
Gleðileg jól allir góðir vinir okkar og megi nýja árið færa ykkur allt það besta og óskirnar rætast. Takk fyrir góðar heimsóknir og stuðning á árinu sem er að líða.