logo

Leita:

Fréttatilkynning

Skrifað af Administrator on 29.08.2008 at 13:50
Forsíða >>

 

Árni Valdimarsson og fjölskylda ætla að blása lífi í gamla hraðfrystihúsið á Eyrarbakka í sumar með því að  starfrækja þar Gallerý Gónhól, listamiðstöð, handverksmarkað og sölumarkað með nýja og notaða hluti.

Í tilefni af Vorhátíð Árborgar verður opnað með pompi og prakt  þann 8.maí kl. 18.00 en sú hátíð mun standa í 10 daga. Edda Björk Magnúsdóttir, Jón Ingi Sigurmundsson og Þórdís Þórðardóttir munu sýna verk sín og fleira listafólk úr héraðinu mun einnig sýna og selja verk á handverksmarkaði.

Það verður síðan opið um helgar í sumar, frá kl. 11.00- 17.00 eða eftir samkomulagi og aðsókn. Kaffihúsið Hlið verður opið á sama tíma og þar munu verða ýmsar menningartengdar uppákomur, upplestur, myndlist, söngur og dans.

Leigðir verða  sölubásar fyrir handverksfólk og í  listasmiðjunni Sölkutóft mun börnum verða leiðbeint  fyrstu skrefin á handverksbrautinni og  þau hvött til að  skapa listaverk og hengja upp eða selja á markaðnum.

Það verður kolaportsstemning í einum hluta hússins þar sem fólk getur leigt bása og selt notaða vöru, nýja vöru, matvæli, fatnað, skartgripi, skó, antikvöru, húsgögn, bækur, bíla og traktora…

Líknarfélög, kvenfélög og önnur góðgerðarsamtök eru boðin velkomin til okkar og fá sölu- eða kynningarbás endurgjaldslaust.

Allar nánari upplýsingar veitir Anna Árnadóttir í síma 842 2550

Back