Erum að taka niður pantanir fyrir fermingar og alls konar veislur |
| Skrifað af Anna Árnadóttir on 09.02.2012 at 21:31 |
SÖKUM MIKILLAR EFTIRSPURNAR ÞARF AÐ GREIÐA FYRIRFRAM FYRIR SALINN TIL ÞESS AÐ STAÐFESTA PÖNTUN !
Leiga á sal:
15.000 kr. ½ dagur 25.000 kr. 1/1 dagur 30.000. kr. kvöld.
Ef keyptar eru veitingar fyrir a.m.k. 10.000. er salurinn frír.
Ef salur er leigður með leirtaui er verðið 45.000.
Dúkar kosta 500 pr. stk. Salurinn skal vera sópaður og öllu skilað í sama ástandi og þegar komið var að því.
Ein manneskja fylgir salnum og kostar 3.500 pr. klst
Við tökum á móti hópum í mat, kaffi og með´ðí alls konar skemmtiprógrömm eru einnig í boði , allt eftir óskum hvers og eins.
Dæmi um verð til hópa:
Miðdagskaffi: Kaffi, heimabakað brauð með tómötum, gúrku og eggjum, eplakaka með ís og rjóma: 1500 kr.
Léttur hádegisverður, grænmetisbaka/ grænmetissúpa, salat og heimabakað brauð: kr. 1800.-
Léttur kvöldverður, pastaréttir með brauði, pottréttir með hrísgrjónum o.fl. kr. 2.200.-
Grænmetissúpan góða með heimabökuðu brauði og ákasti: 1200.-Kjötsúpa og flatkökur með smjöri: kr. 2.500.-Plokkfiskur með rúgbrauði: kr. 1.900.-
Grillveislur: lambajöt, grísakjöt, kjúklingur, sveitakartöflur sósa, Ora grænar , rauðbeður og rauðkál ásamt rabbarasultu.
Eftirréttur, nokkrar tegundir í boði: kr. 4.900 Kaffi/te og súkkulaðimoli: kr. 300.-Gosglas með ábót. 300 kr.
Uppgefin verð eru á mann miðað við 20 manns eða fleiri. Við getum tekið allt að 250 manna hópa frá og með 1.maí en annars allt að 90 manns.
Hálft gjald er fyrir börn 6-12 ára en yngri börn fá frítt.
Back