logo

Leita:

Allir saman á Eyrarbakka um næstu helgi!

Skrifað af Anna Árnadóttir on 12.08.2009 at 10:23
Forsíða >>

Aldamótahátíð á Eyrarbakka 15. og 16. ágúst
Sjá einnig hér
 
 
 
Laugardagur 15. ágúst.
 
08.30 Flöggun
 
Alþjóðleg móttökunefnd dreifir nánari dagskrá og býður fólk velkomið
 
09.30 Vesturbúðin opnar
 
10.00 Gallerí Regína opnar verður með óvæntar uppákomur og pönnukökur á pallinum allan daginn.
 
11.30 Rauða Húsið opnar . www.raudahusid.is
 
11.00 Byggðasafn Árnesinga í Húsinu og Sjóminjasafnið á Eyrarbakka opna. Allir sem eru þjóðlega klæddir fá frítt inn á söfnin um helgina. Jafnvel sjóhatturinn dugar! www.husid.com
 
11.00 Gónhóll opnar markaðstorgið , grænmeti, bakkelsi, handverks- og nytjamarkaður. Latti sýnir olíu og vatnslitamyndir.  Kaffihúsið hennar ömmu ilmar af heitu súkkulaði og pönnsum. www.gonholl.is
 
13.30 Skrúðganga fyrir menn og dýr frá Barnaskóla Eyrarbakka um þorpið og endar í Kjötsúpuhátíð við Húsið, Byggðasafn Árnesinga.
Sláturfélag Suðurlands og SR grænmeti á Flúðum ásamt fyrirtækjum á Eyrarbakka bjóða  uppá ekta íslenska kjötsúpu fyrir alla þá sem mæta með bollann sinn eða skálina.
 
Fornbílar aka inn í þorpið og sameinast okkur í kjötsúpuhátíðinni. // Lógó Fornbílaklúbbs Íslands og Olís
 
14.00 Setning
Andrés Sigurvinsson lista og menningarfulltrúi Árborgar.
 
14.30  Barnagaman  á Garðstúni. Gamlir íslenskir leikir rifjaðir upp í umsjá valinkunnra kvenna af Bakkanum.
 
Kjörís býður uppá ís     
 
 Hörður Jóhannsson skipstjóri bætir net og hnýtir hnúta á Sjóminjasafninu. Munið að það er frítt fyrir ykkur með sjóhattinn!
 
Hestamenn af Bakkanum bjóða börnum á hestbak
 
Söluborð og markaðstorg um allt þorp.
 
Thomsensbíllinn var fyrsti bíllinn sem kom á Eyrarbakka 1904. Sverrir Andrésson hefur smíðað eftirgerð af honum og býður fólki í smáswing um þorpið. Fornbílaklúbbur Íslands býður einnig lekkerum dömum og hattklæddum herrum á rúntinn.
 
15.00 Kappsláttur á grasbletti vestan við íshúsið. Keppendur skrái sig í síma 863 1182 og mæti minnst 30 mínútum fyrr með amboð. Brýni er á staðnum og kaupakonur raka ljá.
Engjakaffi í boði Kökugerðar HP
 
16.00- 18.00 Rakubrennsla og holubrennsla bak við Óðinshús. Ingibjörg Klemenzdóttir og María Ólafsdóttir
 
16.00- 18.00 Má bjóða yður í bæinn? Gestrisnir Eyrbekkingar bjóða til stofu og sýna gamla muni, leikföng og dúkkulísur. Harmonikkan dunar og boðið er uppá danskar eplaskífur, kaffi og lummur. Ketilkaffi og kandís.
 
Dvalarheimilið Sólvellir með opið hús .
 
13:00/ 15.00/17.00  Á ferð um Eyrarbakka/ Hús og menning / Síðdegisrúntur með Magnúsi Karel  Hannessyni á gamla gistihússbílnum ÁR 67
 
18.00  Tónleikar í Gónhól / Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir og Vignir Stefánsson
Frír aðgangur
 
21:30 - 23:30 Hlöðuball í Gónhól. Hinir einstöku Bjarnabófar sjá um gleðskapinn. Bakköl í pokann.
 
 
Sunnudagurinn 16. ágúst
 
08.30 Þorpsbúar draga fána að hún.
 
10.00 Gallerí Regína opnar verður með óvæntar uppákomur og pönnukökur á pallinum allan daginn.
 
10.00 Vesturbúðin opnar
 
11.00 Morgunmessa við Slippinn. Sr. Sveinn Valgeirsson messar
 
11.30 Rauða Húsið opnar . www.raudahusid.is
 
11.00 Byggðasafn Árnesinga í Húsinu og Sjóminjasafnið á Eyrarbakka opna. Allir sem eru þjóðlega klæddir fá frítt inn á söfnin um helgina. Jafnvel sjóhatturinn dugar! www.husid.com
 
11.00 Gónhóll opnar markaðstorgið , grænmeti, bakkelsi, handverks- og nytjamarkaður. Latti sýnir olíu og vatnslitamyndir. Kaffihúsið hennar ömmu ilmar af heitu súkkulaði og pönnsum. www.gonholl.is
 
14.00- 18.00  Rakubrennsla og holubrennsla bak við Óðinshús. Ingibjörg Klemenzdóttir og María Ólafsdóttir
 
13:00/ 15.00/17.00  Á ferð um Eyrarbakka/ Hús og menning / Síðdegisrúntur með Magnúsi Karel Hannessyni á gamla gistihússbílnum ÁR 67
 
Hestamenn af Bakkanum bjóða börnum á hestbak
 
Fornbílar bjóða hattadömum og herrum á blankskóm á rúntinn.
 
16.00- 18.00 Má bjóða yður í bæinn? Gestrisnir Eyrbekkingar bjóða til stofu og sýna gamla muni, leikföng og dúkkulísur. Harmonikkan dunar og boðið er uppá danskar eplaskífur, kaffi og lummur. Ketilkaffi og kandís.
 
Dvalarheimilið Sólvellir með opið hús.
 
Söluborð og markaðstorg um allt þorp.
 
15.00-17.00 Hjördís Geirsdóttir söngkona stýrir Rekstrasjón  í Gónhól
Dömufrí og heitt súkkulaði ásamt pönnukökum með rjóma.
 
21.00 Hátíðinni slitið við Slippinn. Árni Johnsen stýrir fjöldasöng .
Langeldur og flugeldasýning í umsjá Björgunarsveitarinnar Bjargar.
 
Tjaldstæði og gisting fyrir alla fjölskylduna á Eyrarbakka, Stokkseyri og Selfossi. www.gonholl.is, www.sudurgisting.is www.rein-guesthouse.is
 
 
 
Sjá nánari dagskrá og viðburðatilkynningar á www.eyrarbakki.is
 
 

 

Back