logo

Leita:

Aldamótaþorpið fær styrk frá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands

Skrifað af Anna Árnadóttir on 12.05.2009 at 11:28
Forsíða >>

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands hefur samþykkt að veita styrk til handa verkefninu Aldamótaþorpið að fjárhæð kr. 300.000.-

Við þökkum innilega stuðninginn
 

Líkan Finns Arnars og Þórarins Blöndal er til sýnis hjá okkur á kaffihúsinu Gónhól og það mun svo verða hægt að fylgjast með framkvæmdum í sumar inni í stóra salthúsinu okkar þegar farið verður að smíða eftir líkaninu Aldamótaþorpið.

Í þorpinu verður reynt að líkja sem mest eftir gamla tímanum bæði með verzlunum er í húsunum verða, og klæðnaði þeirra sem þar verða.  Þannig má búast við að vaðmálsbuxur og föðurlönd verði aðaltískan, og í staðinn fyrir buxnabelti komi snærisspottar.

Back