Valgerður Ingólfsdóttir eða Vaddý eins og margir kalla hana, heldur málverkasýningu á Gónhól Eyrarbakka dagana 1. ágúst til 31. ágúst næstkomandi.
Á sýningunni verða akryl og vatnslitamyndir, flestar eftir íslenskum fyrirmyndum.
Valgerður hefur búið erlendis í tæpa fjóra áratugi en hefur alltaf verið sannur Íslendingur eins og myndirnar bera með sér.
Hefur hún verið við nám í myndlist í skólum í Bandaríkjunum og einnig notið handleiðslu fransks listmálara í fjölda ára.
Á sumrin ferðast hún og eiginmaður hennar Sigurður um Ísland og taka mikið af myndum. Síðan eru bestu myndirnar valdar og málar hún eftir þeim bæði hérna heima og ein í Bandaríkjunum.
Þetta er sjöunda einkasýning hennar hérna á Íslandi.
Seiðlæti á Gónhól á Eyrarbakka föstudagskvöldið 23. júlí kl 20.30!
Gyðjukvöld með tónlistarívafi
Seiðlæti eru Reynir Katrínarson Hvítvíðbláinn Galdrameistari og skapandi listamaður og Uni eða Unnur Arndísardóttir söngkona og tónskáld. Munu þau flytja Þagnarþulur, sem eru ljóð eftir Reyni við tónlist Unnar, en Þagnarþulurnar eru tileinkaðar íslensku Gyðjunum úr Goðafræðinni. Þetta verður einskonar athöfn til heiðurs Íslensku Gyðjunum. Þar sem þau munu kynna Gyðjurnar og flytja lög þeirra. Reynir mun einnig vera með til sölu sín víðfrægu Gyðjuhálsmen, Rúnir og húfur svo eitthvað sé nefnt. Búast má við seiðmögnuðu og notalegu kvöldi á Eyrarbakka þar sem töfrarnir svífa yfir vötnum. Frítt inn!
Bragi Sverrisson myndlistarmaður opnar málverkasýningu hjá okkur laugardaginn 3.júlí . Hann sýnir myndir málaðar í olíu á striga, flestar málaðar á árunum2009 -2010 og er myndefnið oftast íslensk náttúra en einnig eru nokkrar dýralífsmyndir.
HINIR FYRSTU VERÐA HALDNIR NÆSTKOMANDI FIMMTUDAGSKVÖLD 24.JÚNÍ. ÞETTA ERU LÁGSTEMMDIR TÓNLEIKAR ÞAR SEM KOMA FRAM ÞAU RAGNHEIÐUR BLÖNDAL VIÐ GÍTARUNDIRLEIK GRÉTARS Á SÓLVANGI OG DÚETTINN MYST EN HANN SKIPA ÞAU KOLBRÚN EVA VIKTORSDÓTTIR OG HARALDUR G. ÁSMUNDSSON.
TÓNLEIKARNIR HEFJAST KL. 20.30
EIGUM SAMAN NOTALEGA KVÖLDSTUND Í GÓÐU UMHVERFI
SJÁUMST Í SUMARSKAPI!
Emil og Lína eru að koma frá Svíþjóð með fullt af nýjum vörum, litrík og krúttleg sumarföt sem gleðja alla. Austfirskar konur eru með glæsilega samsýningu, kaffihúsið ilmar af kræsingum og sjómannadagurinn er hátíðisdagur á Eyrarbakka.
Við erum með frábærar ferðir fyrir starfsmannafélög og hópa sem vilja koma á Eyrarbakka í naflaferðir....sendið okkur póst og við sérsníðum ferðir fyrir hópa...gönguferðir, hamingjuhopp, súpur og brauð...alls konar spádómar lesið í lófa, spil, bolla og rauðvín. Skemmtilegt og uppbyggjandi að koma í nafla alheimsins. Einnig sjáum við um stór og smá ættarmót. Ódýr gisting í svefnpokaplássi eða stúdíóíbúðir með öllum þægindum. Pantanir og uppl. í síma 842 2550 eða á gonholl@gonholl.is
Barnafataverslunin Emil og LínaEmil og Lína ætla að kíkja í heimsókn til ömmu á Eyrarbakka um helgina. Krambúðin hennar á Gallerý Gónhól verður full af krúttlegum bítlasamfellum, barbapabbafötum o.fl úr Barnafataversluninni Emil og Línu. Opið alla helgina, frá fimmtudegi frá 11-18. Hvet ykkur til að kíkja og fá ykkur heimabakaða hjónabandssælu í leiðinni
Við minnum á að Gónhóllinn okkar er að opna um helgina með breyttan opnunartíma. Nú verður opið frá kl. 11-18 allar og helgar í maí og síðan ætlum við að gera tilraun og hafa opið ALLA daga í sumar, frá kl. 11-18.
Það eru margar nýjungar hjá okkur og mikið framundan í sumar enda er Eyrarbakki staður á uppleið. Við verðum með vorfiðringstilboð á gistingu í maí, krambúðin er full af nýjum vörum og við viljum sérstaklega vekja athygli ykkar á því að við erum komin með Fair Trade vörur og mikið af íslenskri framleiðslu. Þar má nefna kruðerí og kökur, sápur, kerti, krem og olíur...bara svona til að nefna eitthvað en úrvalið er mikið og eykst stöðugt! Við byrjum með kryddjurtir frá Engi , kirsuberjatómata, chili og fleira, síðan koma sumarblómin og svo eykst úrvalið eftir því sem jörðin gefur. Um helgina erum við með fyrirtaksstofnútsæði , fræ og mold fyrir ykkur með grænu fingurna.
Kaffihúsið ilmar af kræsingum og þar er Jón Ingi vorfuglinn okkar með sína 3ju vorsýningu á Gónhól og við vekjum sérstaka athygli á einstaklega fallegum vatnslitamyndum af Eyrarbakka. Oft hefur nú Jón verið góður og hann verður bara betri með hverju árinu.
Markaðstorgið er fjölbreytt að vanda, þar verða lífræn barnaföt, prjónavörur, steinkarlar, hnífabrýni, flugnaspaðar, glerlist, búslóðir og föt, notuð og ný.
Það er því tilvalið að skella sér á rúntinn um helgina og koma við hjá okkur á Eyrarbakka.
Við opnum 1. maí og það verður opið alla helgina frá kl. 11-18.
Jón Ingi opnar málverkasýningu í kaffihúsinu, krambúðin er opin og markaðstorgið iðar af lífi og fjöri. Ef þú kemur til okkar og leigir íbúð færðu frían sölubás á markaðstorginu og getur skemmt þér með okkur bæði laugardag og sunnudag!
Sölubásinn kostar 4000 á dag en 6000 ef þú tekur báða dagana!
Við erum með frábærar ferðir fyrir starfsmannafélög og hópa sem vilja koma á Eyrarbakka í naflaferðir....sendið okkur póst og við sérsníðum ferðir fyrir hópa...gönguferðir, hamingjuhopp, súpur og brauð...alls konar spádómar lesið í lófa, spil, bolla og rauðvín. Skemmtilegt og uppbyggjandi að koma í nafla alheimsins. Einnig sjáum við um stór og smá ættarmót. Ódýr gisting í svefnpokaplássi eða stúdíóíbúðir með öllum þægindum. Pantanir og uppl. í síma 842 2550
Við ætlum að hafa hafa opið flesta daga í maí. Að minnsta kosti alltaf þegar einhver er heima...og það verður oftar en ekki því nú verða listamenn að störfum í vinnustofum , kaffihúsið og gistingin verða opin og ekki má gleyma vorboðanum okkar Jóni Inga sem opnar vorsýninguna sína þann 1. maí eins og árvisst er orðið hjá okkur.
Fylgist með hér hjá okkur. Allar helgar verða markaðstorg, og alls konar uppákomur og skemmtilegheit að venju.
Í júní verður svo opið alla daga og þá koma austfirskar konur og sýna listaverkin sín.
Námskeið fyrir börn hefjast einnig í maí, kassabílasmíðar og fleira skemmtilegt.
Jólamarkaður á sunnudag 13.desember. Margir skemmtilegir sölubásar, Guðmundur Brynjólfsson les upp úr verðlaunabók sinni, Þvílík vika kl. 14.00. Kaffihúsið er með fallegar hnallþórur og heimabakað brauð, krambúðin með eitt og annað skemmtilegt og allt angar af piparkökum og enn er hægt að koma og skreyta stærsta piparkökuhús á Íslandi.
Bakkablesa rúntar um Bakkann með jólasveina og væn börn, jólahúsið hennar Regínu er opið og síðan er jólahlaðborð á Rauða húsinu.
Piparkökuhúsið óskar eftir fleiri börnum til að skreyta sig, Sigríður Soffía Gunnarsdóttir ljósmyndari býður jólamyndatökuna í ár.
Piparkökukrakkabúningar á staðnum.
Danshópur kátra krakka úr Lifandi Húsi sýnir á laugardag kl. 14.30.
Tónleikar Gullu Ólafs og Ásgeirs Ásgeirssonar sunnudag kl. 15 og saman munu þau árita nýja diskinn sinn, Skammdegisóð sem seldur er á tilboðsverði þennan dag.
Nú erum við að baka stærsta piparkökuhús á Íslandi og vonum að sem flestir komi og taki þátt í ævintýrinu með okkur! Gísli Kristjánsson smiður á Eyrarbakka, HP flatkökur, Katla ,Húsasmiðjan, Elfa Dögg Þórðardóttir og fleiri eru að hjálpa okkur að framkvæma þessa skemmtilegu hugmynd en við stefnum auðvitað að því að þetta verði árviss viðburður í þorpinu okkar.
Við ætlum að baka risastórar piparkökuskífur og fá skemmtilega krakka
til að heimsækja okkur og saman munum við skreyta og gera manngengt piparkökuhús fyrir alla. Verð fyrir hvert barna er 500 krónur og er heitt kakó og piparkökur innifalið.
Piparkökuhandverk og hönnun 2009.
Skráning í piparkökukeppnina stendur yfir. Allt sem hægt er að baka úr
piparkökudeigi verður tekið inn og haft til sýnis á Gónhól frá og með
fyrsta sunnudegi í aðventu 29.nóvember. Keppt verður í barna og
fullorðinsflokkum.
Úrslit verða kynnt sunnudaginn 13.desember kl. 15.00 í Gónhól á Eyrarbakka.
Vegleg verðlaun í boði fyrir frumlegustu piparkökuhönnunina.
Við minnum á jólamarkaðina okkar sem verða 28.-29. nóvember og 5.-6. desember. Komið og seljið handverkið ykkar eða kaupið íslenskar jólagjafir á góðu verði.
Uppl. og básapantanir í síma 842 2550
Tilboð á gistingu í desember gisting og jólakarfa fyrir tvo á aðeins 16.000
Hagyrðingakvöldið okkar val svo vel heppnað að við erum í skýjunum! Þetta verður árviss viðburður á Safnahelgi hér eftir. Þökkum þeim snillingum Ragnari Inga, Ragnari Böðvars, Þórði Helga, Kristjáni Hreins og Guðmundi frá Túni. Valinkunnir menn og svo eru þeir bara svo skemmtilegir.
Hér kemur smásýnishorn:
Kynningarvísurnar eru eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson og kunnum við honum bestu þakkir. Meira kemur svo síðar en við minnum á markaðinn um helgina og tónleika Guðlaugar Ólafs kl. 15.00 laugardag!
Sem hagyrðingur fer ég vítt um Frón
af fítonskrafti hræri ljóðsins strengi.
Þess vegna sjá svo fáir að ég er flón
þó fjölskylda mín hafi vitað þetta lengi.
Ferð framsóknarmanna til Noregs:
Lausn á vanda framsókn fann
til fundar hélt við Norsarann.
Höskuldur um háloft rann
og hélt að hann væri Súpermann.
Detoxfer stjórnmálamanna og gunnars í Krossinum:
Þegar tækni- lagið -lið
sig leggur fram við "dítoxið"
og tekur á pólitíkusum
og trúarfríkum langþreyttum
svo úr þeim gusast innvolsið ---
Guðlaug okkar Ólafsdóttir ætlar að heiðra okkur með nærveru sinni á laugardag. Hún mun þá ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni gítarleikara og lagasmið hljómsveitarinar taka nokkur lög af nýja disknum "Skammdegisóði" og selja diskinn á tilboðsverði.
Já, það er endalaust gaman á Bakkanum okkar besta!
Hagyrðingar heilla konur og kalla hjá okkur á Gónhól , föstudagskvöldið 6.nóvember kl. 20.00. Þórður Helgason dósent hjá H.Í hefur safnað saman valinkunnu liði og það verður kátt á Gónhólnum það kvöldið.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!
Á laugardag og sunnudag er markaðstorgið opið með jólalegu ívafi. Kaffihúsið ilmar og við bjóðum uppá sérstakt tilboð á gistingu ef þið viljið gista í vöggu sunnlenskrar menningar.
Básapantanir og upplýsingar í síma 842 2550
Munið jólamarkaðinn okkar....fyrstu tvær helgarnar á aðventunni. 28. -29. nóvember og 5.-6. desember.
FULLT AF ALLS KONAR GRÆNMETI, SULTUM, PESTÓ , CHUTNEY,... HANDVERKS- OG NYTJAMARKAÐUR...SVO ER AUÐVITAÐ OPIÐ Í KAFFIHÚSINU OG KRAMBÚÐINNI...GOTT EF EKKI ER LÍKA LAUST GISTIPLÁSS!!!
Við erum að undirbúa æðislega flottan haustmarkað, glænýtt grænmeti, sultur , brauð, kæfur, pestó, te, krem, kerti og sápur...allt svo íslenskt og ekta...Enn eru nokkrir sölubásar lausir fyrir handlagið og skemmtilegt fólk.
Munið skiptimarkaðinn í nóvember...þá verðum við með peningalausan markaðsdag þar sem vöruskiptin verða rifjuð upp!!!
Hlökkum til að sjá ykkur
Allar upplýsingar og básapantanir eru í síma 842 2550 eða á annaarna@gmail.com
Við verðum með opið um helgina frá kl. 13-17 föstudag- laugardag og sunnudag. Pantið ykkur bás í síma 842 2550 :=)
Nýupptekið grænmeti, sultur, brauð og kökur. Gamalt og nýtt í bland, fallegt handverk og íslenskar snyrtivörur. Lækningajurtir úr Dauðahafinu og íslensk græðikrem.
Valtýr Pálsson lýkur sýningunni sinni og Þórdís Þórðardóttir málar á tepokana eins og henni er einni lagið.
Sjáumst á Gónhól elskurnar!
Allar upplýsingar um básaleigu, gistingu og móttöku hópa gefum við í síma 842 2550
Við hlökkum til að sjá ykkur um helgina og höfum opið frá kl. 13-17.
Mamma er búin að baka allar bestu kökurnar og brauðið bíður ykkar ásamt kleinum, jólakökum og flatkökum í bústaðinn. Chilisulta og rabbabarasulta eru nýsoðnar og nytjamarkaðurinn er fullur af góssi. Myndarpiltur kemur alveg sunnan úr Miðjarðarhafi og kynnir sniðuga grænmetishnífa , skrúbba og tól sem koma sér vel við húshaldið.
Allir fá þá eitthvað fallegt á Gónhól um helgina!
Munið að panta sölubása eða bara heyra í okkur í síma 842 2550
Gestir okkar um helgina voru vel á fimmta þúsund og veðrið lék við okkur þó rigndi allt um kring. Íslenski fáninn blakti við hún um allt plássið og fyrirtæki jafnt sem einstaklingar skörtuðu sínu fegursta.
Á laugardagsmorgun var skrúðganga undir forrystu Bakkablesu sem dró Aldamótahestvagninn góða að Rauða Húsinu þar sem boðið var uppá ekta íslenska kétsúpu eftir að séra Úlfar Guðmundsson hafði blessað lýðinn. Þar jusum við upp einum 250 lítrum í gesti og gangandi sem vel flestir komu með súpuskálina sína eða bollann. Hestar,kindur, geitur og hænur voru á Garðstúni og meira að segja myndarlegur tarfur sást þar á beit. Valinkunnar dömur kenndu börnunum leiki frá fyrri tíma og Kjörís deildi út íspinnum. Þá var Thomsensbíllinn á rúntinum og komust færri að en vildu. Eins var mikil örtröð hjá Sigurði Guðbjörnssyni og Magnúsi Karel sem óku um Bakkann á ÁR 67 árgerð 1930 og sögðu sögur af húsum og mannlífi.
Á Vesturbúðartúninu var glæsifleyið Hreggviður til sýnis og gömul heyvinnutæki frá Jóni Inga og Jóhönnu á Þórustöðum í Ölfusi.
Regína var með pönnukökur á pallinum við Galleríið sitt, Gónhóll seldi grænmeti og handverk ásamt því að sýna fornbíla en Fornbílamenn voru heiðursgestir hátíðarinnar og yfir 90 bílar komu akandi að sunnan og tóku þátt í hátíðinni með okkur. Friðrik Erlingsson setti upp ljósmyndastofu á Fornbílasafninu á Gónhól þar sem hægt var að smeygja sér á bak við stór tjöld og láta mynda sig.
Kappslátturinn fór vel fram undir styrkri stjórn Siggeirs Ingólfssonar en ásamt honum voru Þór Vigfússon og Hjörtur Þórarinsson í dómnefndinni. Farandbikarinn kom í hlut Emils Eyrbekkings en allir hlutu viðurkenningarskjöl og kveðskapur H.Þ. prýddi þau. Kvenfélag Eyrarbakka og HP flatkökur á Selfossi buðu uppá Engjakaffið sem rann ljúflega í mannskapinn.
Víða voru opin hús. Eiríkur í Hátúni og nágranni hans Óli Óskars skipstjóri sýndu gömul verkfæri og buðu upp á nýtínd söl. Sigurður og Odda í Heiðmörk buðu uppá lummur og harmonikkuspil, Eyja var með fallegt handverk á Túngötu 28 þar sem bakaðar voru danskar eplaskífur og Arnar í Hvammi deildi út sviðakjömmum og hákarli ásamt rófustöppu. Dvalarheimilið Sólvellir var einnig með opið hús og alls staðar dunaði nikkan góða hjá Dodda og Baldri sem komu víða við og var alls staðar tekið fagnandi.
Þá var raku og holubrennsla við Óðinshús, Guðlaug Dröfn og Vignir Stefáns héldu tónleika á Gónhól, gómsætir réttir runnu út á Rauða Húsinu og Vesturbúðin dældi út ísnum sem aldrei fyrr. Hlöðuballið á Gónhól sló í gegn undir styrkri stjórn Bjarnabófanna og loks sameinuðust allir á Rauða barnum fram eftir nóttu.
Ekki var nú allt búið enn því árla sunnudags sást hempuklæddur maður aka um plássið á Aldamótavagninum góða. Bragi og Bakkablesa voru þar á ferð ásamt Séra Kristni og kvöddu fólk til messu. Enn hélt dagskráin áfram og var mikil örtröð af fólki. Hjördís Geirs stýrði Rekstrarsjón á Gónhól og fékk til liðs við sig harmonikkusnillingana Dodda og Baldur, ásamt Ásgeiri Sigurðs, Daða Einars og Helga Kristjáns.
Hátíðinni var svo slitið við gamla slippinn þar sem Árni Johnsen stýrði fjöldasöng, Guðlaugur Björgvins kveikti langeld og að lokum var flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Bjargar á Eyrarbakka.
Bestu þakkir til allra sem heimsóttu okkur á Eyrarbakka og við stefnum að því að endurtaka leikinn að ári þannig að nú er um að gera að safna í sarpinn og láta hugmyndaflugið njóta sín.
Ný uppskera um helgina en að auki er alls konar skemmtilegt handverk og íslensk framleiðsla til sölu. Komið og smakkið og gerið góð kaup. Glænýjar flatkökur, kleinur, og heimabakað brauð. Nytjamarkaðurinn er fullur af flottu dóti og alls konar tískufatnaði.
Við tökum í umboðssölu eða þið getið pantað sölubása fyrir aðeins 2.500 krónur á dag
Fullt af spennandi vörum bætist við á markaðinn um helgina. Hollusta úr hafinu, reyktur silungur frá Útey, saltfiskur frá Vestmannaeyjum. Handtíndar tejurtir og heimagerð krem og sápur...ótrúlegt úrval af skemmtilegu handverki...fornbílasýningin er opin og kaffihúsið ilmar af kræsingum! Við minnum einnig á fallegu íbúðirnar okkar sem við leigjum út í helgar eða vikuleigu.
Allir alltaf velkomnir til okkar í sólina við sjóinn
Uppl. og básaleiga í síma 842 2550
Minnum á að við tökum líka vörur í umboðssölu ef þið getið ekki verið sjálf að selja!
Hin árlega Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka verður að þessu sinni haldin laugardaginn 27. júní nk. Að vanda verða margir dagskrárliðir og þar eiga allir aldurshópar að finna eitthvað við sitt hæfi. Og eins og undanfarin ár vænta Eyrbekkingar þess að fá sem flesta íbúa Sveitarfélagsins Árborgar til þess að taka þátt í hátíðinni. Gestir úr nærliggjandi byggðarlögum og lengra aðkomnir eru hjartanlega velkomnir.
Yngstu kynslóðinni verður sinnt sérstaklega að þessu sinni með leikja- og skemmtidagskrá sem hefst kl. 11:00 á Garðstúninu við Húsið. Þar koma m.a. í heimsókn þær Skoppa og Skrítla og óvæntar uppákomur verða. Í Gallerý Gónhól hefst dagskrá kl. 14:00 þar sem boðið verður upp á námskeið í flugdrekasmíð og sandkastalalandið verður formlega opnað. Þar verður einnig sýnt atriði úr leikritinu Sjóræningjaprinsessunni.
Hópur frá Listaháskóla Íslands verður með sýningu á smíðaverkstæðinu Merkigili frá kl. 12 til 18. Þar verður einnig opið sunnudaginn 28. júní á sama tíma.
Það má búast við mikilli umferð fornbíla um Bakkann þennan dag, því bæði Fornbílaklúbbur Íslands og Krúser-klúbburinn hafa boðað komu sína og sýna bíla sína þennan dag. Huggulegar dömur í háhæla skóm geta húkkað sér far og farið á rúntinn um þorpsgöturnar.
Sigríður Soffía ljósmyndari og húsfreyja í Rein, Þykkvuflöt 4, býður heim til sín kl. 14:00. Þar verður ljósmyndsýning og brassband leikur tónlist.
Og svo ætla ungir menn, stúlkur og piltar, að rifja upp gamla takta úr kýló á Garðstúninu kl. 16:00. Það verður spennandi að sjá hvort einhver nær því að kýla alla leið heim til Gerðu pósts.
Jörg Sondemann organisti á Háeyri mun svo leyfa gestum að heyra tóna orgelsins í Eyrarbakkakirkju kl. 17.
Að venju kemur svo Heimir Guðmundsson frá Blátúni og leikur undir almennan söng í Húsinu kl. 20:30. Þar syngur hver með sínu nefi.
Í fjörunni vestan við þorpið mun Eyrbekkingurinn Kristjana í Blátúni Kjartansdóttir ávarpa gesti kl. 22:00 áður en Andri Eldgleypir spýr eldi og brennisteini og kveikir í Jónsmessubrennunni. Hið margrómaða Bakkaband heldur síðan uppi stemmingunni og spilar undir söng og dansi eins lengi stætt er.
Þegar brennunni lýkur verður Rauða húsið með dansiball á Stað þar sem hljómsveitin Napoleon heldur uppi fjörinu. Það verður einnig opið í kjallaranum á Rauða húsinu fyrir þá sem vilja meiri rólegheit og Fjörubandið sér þar um stuðið.
Aðgangur að söfnunum á Eyrarbakka verður ókeypis þennan dag. Þar eru áhugaverðar sýningar – Hvar varst þú? Stóri skjálfti í borðstofu Hússins og Ferjustaðir í forsal Sjóminjasafnsins.
Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka er styrkt af Sveitarfélaginu Árborg eins og mörg undanfarin ár og heimamenn leggja fram ómælt sjálfboðaliðsstarf við framkvæmd hátíðarinnar.
Það verður mikið um að vera á Eyrarbakka um helgina. Á laugardag 27.júní munum við draga fánann að húni og síðan er stöðug dagskrá allan daginn sem nær hámarki með Jónsmessubrennu í fjörunni vestan við þorpið. Þar mun hið margrómaða Bakkaband spila og stemma okkur í stuð. Ef við finnum fiðring er svo hægt að dansa alla nóttina á Stað.
Á Gónhól verður fjölbreyttur markaður með allt frá kryddsmjöri og hrossbjúgum uppí flatkökur og heimabakað brauð.Sandkastalalandið verður opnað, örnámskeið í flugdrekasmíði hefst um tvö og svo munu félagar úr Sjóræningjaprinsessunni sýna atriði úr leikverkinu.
Fornbílasýning verður inni í stóra saltfisksalnum en einnig munu glæsikerrur rúnta um og bjóða laglegum hnátum salibunu um þorpið.
Munið að við erum að safna á nytjamarkað og tombólu og erum afar þakklát ef þið hugsið til okkar áður en þið hendið:=)
Við erum alltaf á línunni 842 2550:=) og sækjum góssið til ykkar.
Opið alla helgina föstudag - mánudags frá kl. 13-17
Uppl. og básaleiga í síma 842 2550. Básinn kostar 2.500 kr. á dag
Salatgarður er skemmtileg nýjung sem við bjóðum um helgina. Þú færð bakka með alls konar blaðsalati, setur hann í í garðinn hjá þér og tekur svo fersk blöð í salatið þegar þér hentar. Til að koma í veg fyrir sniglaárás er gott að taka nokkur hvítlauksrif og henda yfir af og til.
Við erum einnig með nýuppteknar radísur, girnilega tómata og gúrkur, paprikur og kartöflur. Nýbakað brauð í blómapottum, kökur og sultur. Allt saman voðalega ósköp gott í bústaðinn eða útileguna.
Um helgina eru skemmtilegir sölubásar, alls konar handverk og lagerhreinsanir á góðu verði. Börnin á Eyrarbakka eru með tombóluna til styrktar Þorpinu og þau þiggja með glöðu geði allt sem þið viljið gefa þeim.
Jón Ingi er að ljúka sýningunni sinni, börnin í Brimveri á Eyrarbakka eru með mjög skemmtilega sýningu og fangarnir á Litla Hrauni kynna vörurnar sínar.
Kaffihúsið býður ilmandi kræsingar og við vonumst til að sjá ykkur sem flest!
kær kveðja af Bakkanum...þar sem best er að vera....
Austast í Skúmstaðarlandi upp við sjógarð fram af Garðbæ er hóll nokkur eða hár bakki sem heitir Gónhóll og dregur nafn sitt af því að þar er útsýni gott til hafsins og fólk úr nágrenninu svo og hafnsögumaðurinn sem bjó í Garðbæ fyrr á tíð gjarnan staðið þar og kannað sjólagið. Í fornum heimildum er getið um kirkjugarð á þessum slóðum frá Skúmstöðum en þar mun hafa verið kapella til forna.
Til eru nokkrar sögusagnir um hól þennan og koma hér þrjár sögur sem tengjast þessum hól.
VETRARMAÐURINN.
Jóhann hét maður og var Loftsson, bónda í Sölkutóft Jónssonar frá Ketilstöðum í Mýrdal. Jóhann var lengi formaður á Eyrarbakka. Hann hafði oftast hjá sér vetrarmann til að sinna ýmsum verkum í landi.
Eitt kvöld þegar vetrarmaður Jóhanns var að koma frá beitningu, þá gengur hann fram á hólinn. Maður þessi var talinn skyggn á ýmsa hluti. Sér hann þá veru nokkra, ferlega ljóta og illilega ásýndum. Var vera þessi gengin upp fyrir hné, þannig að hann sá aðeins efri hluta verunnar. Vetrarmaður varð nú óttasleginn mjög og hraðaði sér burt sem skrattinn sjálfur væri á hælum hans. Þegar heim var komið tók heimafólk eftir að hann var fölur og fár sem veikur væri og fór að ganga á hann hvað fyrir hefði borið,en vetrarmaður var hljóður sem úr steini gerður.
Það varð ekki fyrr en löngu seinna,sem að hann rakti raunir sínar fyrir Jóhanni Loftssyni og sagði honum frá sýn sinni og gat þess um leið að þetta hefði verið sú ljótasta vera sem fyrir augu hanns hefði borið og hefði hann þó margt séð sem öðrum var hulið.
GRÚTARBRÆÐSLAN.
Á árunum eftir fyrri heimstyrjöldina var stofnað félag um útgerð á Bakkanum. Gengust fyrir því nokkrir farmenn og aðrir framfarasinnaðir einstaklingar svo sem Guðmundur Guðmundsson kaupfélagsstjóri.
Keyptir voru nokkrir mótorbátar og umsvif mikil viðhöfð,við að koma útgerðinni á laggirnar og meðal annars ráðist í að koma upp grútarbræðslu og var gert ráð fyrir að hún yrði sett upp á Gónhól en sú ákvörðun mæltist illa fyrir hjá gömlu fólki,sem taldi álög hvíla á hólnum og taldi að illt myndi af hljótast ef farið yrði að raska hólnum.
Þrátt fyrir þessar aðvaranir og hrakspár var hafist handa og grútarbræðslan byggð á hólnum enda töldu yngri menn þetta bábyljur og hjátrú í gamla fólkinu sem ekkert mark væri takandi á.
En þó var ekki að sökum að spyrja því eftir þetta rak hvert óhappið annað hjá útgerðarfélaginu. Grútarbræðslan brann til kaldra kola, bátarnir ýmist fórust eða ráku upp í fjöru og einn bátinn mb.Freyju rak á haf út og sást aldrei framar. Siðan hefur ekki nokkur maður lagt sig við að raska hólnum og jafnvel forðast að stíga þar fæti.
KVEÐJA AÐ HANDAN.
Þegar Magnús Oddson, sonur Odds Oddsonar gullsmiðs var hreppstjóri á Eyrarbakka var hann jafnframt umboðsmaður jarðeigna ríkisins á staðnum. Hann lét meðal annars girða kringum Gónhól og hækka og lengja sjógarðinn þar við,svo ekkert yrði honum til skaða.
Nokkru eftir þetta gerist það á miðilsfundi í Reykjavík að boð koma til konu einnar sem þar var stödd og var hún burtfluttur Eyrbekkingur sem sest hafði að í höfuðborginni. Boðin voru frá tveim Pápískum munkum framliðnum og báðu þeir konuna að flytja Magnúsi Oddssyni sínar kærustu þakkir fyrir skjólið sem hann hefði gert þeim svo vel. Næst þegar kona þessi á ferð austur á Bakka gerir hún sér ferð til Magnúsar og flytur honum kveðjuna frá hinum framliðnu munkum en Magnús sem var vel aðsér í hinum veraldlega heimi, en jafn ófróður um yfirnáttúrulega hluti sagði nú heldur fátt en þeir sem honum voru kunnugir, sáu að vænt muni honum hafa þótt um kveðjuna að handan.
Laugardag kl. 13:00 Útskriftartommbóla hjá nemendum HUX. Börnin safna fyrir jafnaldra sína á Indlandi. Margrét Annie Guðbergsdóttir veitir afrakstri dagsins viðtöku og segir frá starfi sínu á Indlandi.
Gónhóll opnaði um helgina með glæsilegan markað. Sunnlenskur korngrís, alinn á sunnlensku byggi var einna vinsæalasta söluvaran en að auki var dásamlegt sunnlenskt grænmeti, heimabakkelsi, sultur og fleira kruðerí.
Um helgina var mjög fjölmennt í Gónhól og sóttu að ungir sem aldnir til að kynna sér indverska menningu og fá að smakka á ýmsu því góðgæti er þar var boðið upp á.
Börnin höfðu sérlega gaman af því að fá að smakka ýmis krydd frá Indlandi og fylgdust með af miklum áhuga eins og á myndinni má sjá.
Allar myndir Baniprosonno seldust upp á opnuninni þann 5.apríl sl. en munu hanga til sýnis út apríl ásamt frábærum teikningum sem hann selur á vægu verði.
,, Verkin mín voru gerð fyrir Ísland og ég vil þau verði hér" segir hinn síungi listamaður. Hann mun einnig halda sýningar í Reykjavík og námskeið fyrir börn og fullorðna á Listasafni Árnesinga og hér á Gónhól.
Við minnum á að það verður opið hjá okkur fimmtudag, föstudag og laugardag, handverk og hönnun verða með sölusýningu, kaffihúsið er opið og söngfuglarnir Steinunn Bjarnadóttir og fleiri góðir Tungnamenn munu skemmta okkur á föstudag en á laugardag verður svo Garðar Olgeirsson harmonikkuleikari með okkur
Sendiherra Indlands á Íslandi opnar sýninguna, boðið verður uppá léttar veitingar og ljúfa tónlist.
Hinn 76 ára en síungi listamaður er fæddur í Kalkútta en býr nú við rætur Himalæjafjalla í 2500 metra hæð á milli þess sem hann ferðast um og heldur sýningar á Indlandi og í Evrópu þar sem hann hefur sýnt í Sonja Henie safninu, Listasafni Álaborgar, Menningarhúsi Stokkhólms
auk margra annarra stórborga á sínum langa ferli.
"Baniprosanno fer með liti af léttleika sem jaðrar við kæruleysi. Í myndum hans gætir sterkra áhrifa frá þjóðlegri list. Hann hefur allt frá barnæsku haft áhuga á hvernig hinn nævi eða þjóðlegi listamaður sér náttúruna og skynjar samruna sinn við hana. Hann er óbundinn af hefðum skólalistar og það er hrein unun að sjá hvernig risastórir fílar eða ugla sem felur sig í skóginum spretta fram á myndfleti hans með nokkrum frjálslega dregnum línum og sterkum litum", segir þýskur gagnrýnandi.
Þetta er önnur heimsókn listamannsins til Íslands en í fyrrahaust dvaldi hann hér um tíma og hélt þá námskeið fyrir börn í Listasafni Árnessýslu og verða þau
endurtekin sjá vef Listasafns Árnesinga sjá vef safnsins http://www.listasafnarnesinga.is/
Hann mun einnig halda námskeið hér hjá okkur í Lista og tungumálamiðstöðinni, www.hux.is í tengslum við indverska listahátíð vikuna 18-25.apríl.
Opið verður kl. 13-17 og er aðgangur ókeypis.
Sýningin nýtur stuðnings nýopnaðs Sendiráðs Indlands á Íslandi.
Í Gallerí Gónhól verða jafnframt til sýnis munir frá hönnuðum í Handverki og hönnun 9.-11.apríl og þá mun einnig verða tónlistarflutningur og fleira góðgæti á boðstólum.
Tungumálin í brennidepli I, byrjunarnámskeið fyrir 6-12 ára börn.
Tími: þriðjudagar og fimmtudagar kl. 15.00-16.30
Verð 12.900kr. 10 skipti
Tungumálin í brennidepli II, framhaldsnámskeið fyrir 6-12 ára börn.
Tími: mánudagar og miðvikudagar kl. 15.00-16.30
Verð 12.900 kr. 10 skipti
Ég er besti vinur minn, sjálfsstyrking og listsköpun fyrir 11- 16 ára.
Hóparnir eru kynjaskiptir og hámarksfjöldi eru 8 einstaklingar.
Lögð er áhersla á frjálsa tjáningu í gegnum myndlist, tónlist og leiklist.
Einstaklingsmiðað námskeið þar sem tekið er mið af þroska og hæfni hvers og eins. Markmið að námskeiði loknu er að þátttakendur sjái sjálfa sig í jákvæðu ljósi og beini sjónum að sínum sterku hliðum og ákveði að hafa áhrif á aðstæður sínar.
Tími: miðvikudagar kl. 17.00- 18.30
Verð 7.900 kr. 10 skipti
Tungumálið er leikur einn. Samverunámskeið fyrir börn og foreldra sem vilja læra tungumál saman á skemmtilegan hátt.
Amma og afi líka velkomin.
Tilvalin fermingargjöf!
Tími: þriðjudaga kl. 17.00-18.30 ENSKA
Tími: fimmtudaga kl. 17.00-.18.30 SPÆNSKA
Námskeið framundan sem verða auglýst síðar.
Ertu að flytja til útlanda? Leiðbeiningar og aðstoð við búferlaflutninga auk kennslu í grunnatriðum tungumálsins fyrir foreldra og börn.
Danska, enska, spænska, franska og þýska.
Markaðstorg, atvinnusköpun fyrir atvinnulausa.
Námskeið í handverki alls konar, sultugerð, súrsun, brauðbakstri og fleiru sem selja má á Gónhólsmarkaðnum og víðar.
Alþjóðleg matreiðslunámskeið
Vínkynningar
Hekl og prjónanámskeið
Listin að segja sögu
Listin að yrkja bögu
Ljósmyndanámskeið
Endurvinnslan byrjar heima
Jóga fyrir 50 ára og eldri
Þjóðdansar
Gestalistamenn, innlendir og erlendir munu einnig halda námskeið fyrir börn og fullorðna.
Munið Alþjóðakvöldin okkar. Innflytjendur hafið samband og við skipuleggjum með ykkur kynningu á ykkar menningu.
Lista og Tungumálamiðstöðin HUX opnar á mánudaginn 12.janúar
Við verðum með opið hús og kynningu á vetrarstarfinu á laugardaginn 10.janúar. Endilega kíkið við og fáið ykkur eplabita eða gulrót og skráið börnin ykkar í skemmtilegt og skapandi starf. Við munum kenna á mánudögum og miðvikudögum til að byrja með frá kl. 14.-16.30. Lögð verður áhersla á spænsku og ensku til að byrja með en síðan bætum við dönsku fljótlega við og síðan frönsku og þýsku þegar tóm gefst til.
Hver dagur hefst á samverustund þar sem við spjöllum saman um verkefni dagsins en síðan er innlögn og börnin búa til orðaforða sem tengist verkefnum miðvikudagsins. Ef við ætlum til að mynda út á strönd í sjóræningjaleik á miðvikudag, söfnum við orðum á spænsku eða ensku sem við notum síðan á ströndinni. Ef við ætlum að elda paellu á miðvikudag, söfnum við orðum´fyrir þá eldamennsku á mánudeginum. Hverjum degi ljúkum við svo með slökun í 10 mínútur áður en við förum heim.
Fyrsta mánudag í hverjum mánuði er sparifatadagur. Þá mæta börnin í sparifötunum og við förum í heimsókn, stundum á elliheimili, leikskóla, sjúkrahús eða safn. Þar sýna börnin heimatilbúin leikþátt, lesa eða syngja. Síðasta miðvikudag í mánuði bökum við svo landafræðipönnukökur.
Foreldrar eru alltaf velkomnir að koma til okkar og vera með okkur, hluta úr degi eða lengur ef þeir hafa tök á. Við minnum á að þetta er þróunarstarf þannig að allt getur breyst ef okkur langar til.
Góða skemmtun í HUX
Allar upplýsingar gefur Anna S. Árnadóttir í síma 894 2522
Alls konar skemmtilegar jólagjafir, leirlist, myndlist og gler. Heimagerðar sultur, smákökur og sunnlenskt grænmeti, glænýtt rauðkál og gulrætur frá Ragnhildi á Flúðum. Uppskriftir að heimagerðu rauðkáli fylgja. Brjóstsykurgerð á staðnum. Handgerð kerti og reykelsi, dagatöl, bækur, snyrtivörur, heilsuvörur, handmálaðar jólakúlur.
Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir kynnir nýja diskinn sinn og syngur með jólasveininum og börnunum á sunnudag.
Ilmandi jólastemming í kaffihúsinu.
Tilboð á gistingu. Nýjar og huggulegar íbúðir við ströndina aðeins 5000 krónur nóttin.
Það var einstaklega skemmtilegt að vera með í þessum frábæra menningarviðburði á Suðurlandi. Enn og aftur sannast hið fornkveðna...Sameinuð stöndum vér...og nú verður þetta vonandi árviss viðburður hjá okkur.
Næsta opnun í Gónhól verður jólamarkaðshelgin okkar 13. og 14.desember. Þá munum við sameinast um að gera huggulegt og jólalegt á Bakkanum okkar, jólasveinninn kemur í heimsókn og þægir krakkar fá pakka...
Allar nánari uppl. í síma 894 2522 og í síma 842 2550
Sunnlensk Safnahelgi, Menningarveisla um allt Suðurland
Föstudagskvöld 7.nóvember kl. 20-22
Opnun handverks - og flóamarkaðar. Baðstofukvöld með einstökum Eyrbekkingum og fleiri góðum gestum sem segja sögur og taka í nefið í umsjá Árna Johnsen.
Kaffihúsið býður uppá heitt súkkulaði og vöfflur ásamt ýmsu góðgæti sunnlenskra húsmæðra.
Þórdís Þórðardóttir opnar myndlistarsýningu og Sigrún Ström opnar sýningu á ljósmyndum.
Laugardagur 8.nóvember kl. 14-18
Ljósmyndakeppni unga fólksins. Sigrún Ström leiðbeinir við ljósmyndun á ströndinni ef veður leyfir. Dómari Georg Theodórsson ljósmyndari frá Reykjavík. Skráning í Gónhól eða í síma 894 2522. Kostar ekkert nema gleði í hjarta og bros á vör.
Áframhaldandi markaðsdagur með áherslu á sunnlenskt grænmeti.
Grænmetiskynning og uppskriftir að heilsusamlegum réttum úr matarkistu Suðurlands. Kaffihúsið verður sérstaklega á heilsulínunni og gefur tóninn með nýrri hollustuköku úr íslensku mjöli.
Laugardagskvöld við sjóinn
Kl. 20.00 verður einmuna skemmtileg tónlistarveisla í umsjá Jóhannesar Erlingssonar sem er Eyrbekkingur í húð og hár. Hann fær til liðs við sig fleiri snillinga af Bakkanum og við munum gleðjast fram eftir kvöldi við ljúfa tónlist og skemmtilegheit. Pokarnir mega koma með....
Sunnudagur 9.nóvember kl. 14-18
Barnaleikarnir 2008 verða ræstir fráGónhól kl. 14.00
Eyrarbakkaþrautin er skemmtileg þríþraut fyrir alla fjölskylduna í umsjá Alberts Þórs Magnússonar íþróttaþjálfara frá Selfossi. Öll fjölskyldan kemur saman og spreytir sig á hinum ýmsu íþróttum. Skráning í Gónhól eða í síma 894 2522.Allir velkomnir, ungir sem aldnir.
Áframhaldandi markaðstemmning. Sunnlenskar sultur í aðalhlutverki, pakkauppboð á jólatorginu. Allur ágóði rennur til stofnunnar hagsmunasamtaka Eyrarbakka.
Fjöldasöngur í kaffihúsinu og afhending verðlauna í Ljósmyndakeppninni og Bakkaleikunum. Ef veður verða ekki válynd má búast við að fornbílar bjóði huggulegum dömum og vel greiddum herrum á rúntinn.
Tilboð á gistingu og kvöldverði um helgina.
Notalegur kostur fyrir rómantískar stundir við ströndina. Gisting í nýrri íbúð sem er í göngufæri við Rauða Húsið sem býður 3ja rétta tilboðsseðil við kertaljós og ljúfa tónlist.
Fjölmennum á Eyrarbakka...krúttlegur staður og kósi
Sunnlensk safnahelgi er framundan og við ætlum að sjálfsögðu að vera með markaðinn okkar í gangi þá helgi.
Það verða einnig skemmtilegar uppákomur söngur, sögur og fleira skemmtilegt. Kaffihúsið verður opið og svo verður okkar vinsæli grænmetismarkaður sem sló í gegn í haust.
Við erum að leigja út bása og hvetjum ykkur til að koma með handverk, sultur, bakstur,gamalt dót eða lagera. Það verður mikil sala og mjög skemmtilegt hjá okkur.
Opnunartíminn er :
Föstudagskvöld 7.nóvember kl. 20-22
laugardagur 8.nóvember kl. 14-18
sunnudagur 9.nóvember kl. 14-18
Verð á básum er 1 borð 3.500.-/ 2 borð 5.500 og svo erum við með síldartunnur og stiga sem kosta 2.500.
Það þarf að koma með striga með sér til að nota sem dúka á borðin svo við fáum flott ,,lúkk" á gamla frystihúsið þar sem Gónhóll er til húsa. eða hringið í síma 894 2522
Hlökkum til að sjá ykkur í sveitastemmningunni á Eyrarbakka...skemmtilegasta verslunarstað á Íslandi!
Við verðum næst með markað á sunnlenskum safnadögum 7.-9.nóvember. Erum að skrá bása og svo verður auðvitað eitthvað spennandi og gott hjá mömmunni í kaffihúsinu.
Í vetur leigjum við út sal fyrir fundi og ráðstefnur og verðum auk þess með skemmtikvöld á sjónvarpslausum fimmtudagskvöldum þegar vel ber í veiði. Allt skemmtilegt fólk er hvatt til að hafa samband við okkur í síma 842 2550 eða 894 2522
Moksala á glænýju íslensku grænmeti um helgina! Við höldum áfram sunnudag 21.sept. og minnum á 3ja og síðasta hlutann af myndlistarkeppni barnanna. Keppt verður í 3 aldurshópum. Formið er frjálst að þessu sinni og vegleg verðlaun í boði.
Alls konar tilboð á markaðstorginu, húsgögn, fatnaður og matvara. Glerlist, leirlist og myndlist, prjónles, hekl og heilsuvörur.
Ilmandi freistingar hjá mömmu í kaffihúsinu.
Kíkið endilega til okkar um helgina. OPIÐ frá kl. 13.-17. og eftir samkomulagi fyrir hópa. Uppl. sími 842 2550
Bændur af Suðurlandi eru að koma uppskerunni í hús og verða hjá okkur um helgina með sýnishorn af brakandi ferskum vörum. Opið laugardag og sunnudag frá kl. 13-18. Minnum einnig á fjölbreytta sölubásana, fornbílasýningu og svo er alltaf eitthvað gott í kaffihúsinu.
Árni Valdimarsson og fjölskylda ætla að blása lífi í gamla hraðfrystihúsið á Eyrarbakka í sumar með því aðstarfrækja þar Gallerý Gónhól, listamiðstöð, handverksmarkað og sölumarkað með nýja og notaða hluti....
Í dag er sá merkisdagur er Gónhóll opnar vefsíðu til að kynna starfsemina.
Á þessari síðu verður meðal annars hægt að bóka gistingu, bása og geymslu fyrir húsbíla og fellihýsi.
Við vonum að hún eigi eftir að koma að góðum notum.
Um helgina standa yfir uppbyggingardagar fyrir ungdóminn í Gónhól á Eyrarbakka. Á laugardag verður 2.hluti Myndlistarkeppninnar en sá 1. fór fram í maí sl. Keppt verður í 3 aldursflokkum og er myndefnið að þessu sinni ; Uppáhaldsdýrið mitt. Dómari verður Þórdís Þórðardóttir myndlistarkona en hún er með sýningu í Gónhól um þessar mundir.
Fyrsti bíllinn á Íslandi, sem kenndur er við Ditlev Thomsen, kaupmann og konsúl, var fransk-þýskur af svonefndri Cudell-gerð. Alþingi samþykkti árið 1903 að veita 2.000 kr. styrk til að flytja inn bifreið og taldi ráðlegast að einkaaðili stæði fyrir því. Thomsen kaupmaður varð fyrir valinu og sá hann um rekstur bifreiðarinnar. Þorkell Þ. Clementz varð fyrsti bílstjóri Íslendinga, hann kenndi Tómasi Jónssyni að aka og saman ferðuðust þeir um takmarkaða vegi landsins, meðal annars til Eyrarbakka.