logo

Leita:

 

Aldamótaþorpið í Gónhól á Eyrarbakka
 
Sagan hefst árið 2006 þegar karl faðir minn, Árni Valdimarsson frá Kílhrauni á Skeiðum, ákvað að gefa sjálfum sér frystihús í 70 ára afmælisgjöf en hann hefur gjarna notað afmælisdagana til að gera eitthvað spennandi og skemmtilegt.
 
 
Hann keypti sem sagt gamla frystihúsið á Eyrarbakka og vann næstu ár við umbætur á byggingunum, teiknaði og lét hanna þetta útlit sem við sjáum hér að ofan en sl. sumar komum við mæðgurnar, mamma, ég og systir mín að verkefninu með honum. Við opnuðum kaffihús , nytja og handverksmarkað sem þróaðist svo í myndarlegan grænmetismarkað í haust þegar uppskeran kom í hús. Við buðum börnunum ókeypis aðstöðu til listsköpunar í Listasmiðju barnanna og til að dömurnar gætu verslað í friði vorum við með fornbílasýningar fyrir herrana. Við buðum á rúntinn á gömlu bílunum, héldum tískusýningar, námskeið og listasýningar svo eitthvað sé nefnt, opnuðum gistihús og aðlöguðum okkur að sem flestum kröfum viðskiptavinanna sem fjölgaði hægt og bítandi allt sumarið.
 
Þetta átti nú bara að vera svona ,,gamni” verkefni til að treysta fjölskylduböndin en óx og dafnaði og spann utan á sig alls konar aukabúgreinar og fjölbreytnin var stókostleg. Þarna komu að allar dætur, mágkonur, frænkur og vinkonur og tóku til hendinni þegar allt fór á flot og unnið var af mikilli gleði og kærleika , mest í sjálboðavinnu enda framtíðarsýnin að mótast og öll innkoma notuð til áframhaldandi uppbyggingar.
 
Sú hugmynd hefur þróast hjá okkur að endurbyggja dansk- íslenskan bæ eins og hann gæti hafa litið út á tímabilinu frá 1880-1940. Það sem við höfum fram yfir önnur söfn/skemmtigarða sem varðveita muni frá þessum tíma er að við erum inni í gamla frystihúsinu á Eyrarbakka og erum því ekki háð veðri eða vindum.
 Húsnæðið er 2700m2 fyrir utan fjórar íbúðir sem innréttaðar hafa verið til útleigu eða þjónustu fyrir væntanlega starfsemi. Húsin standa á sjávarlóð sem er um 6000m2 og er staðsett fyrir miðju þorpinu á Eyrarbakka , umkringt gömlu byggðinni þar og með miklu og fögru útsýni til hafs og heiða. Því má segja að stækkunarmöguleikar séu gríðarlegir sem er gott því verkefnið er enn í mótun og nýjar hugmyndir bætast við á hverjum degi. Nú er tekin til starfa stefnumótunarhópur sem samanstendur af góðu og áhugasömu fólki sem vill veg verksins sem mestan og hefur að auki faglegan metnað og þekkingu til ráðgjafar á sviði menningarsögu og safnamála. 
 
Framtíðarsýn okkar er að aldamótaþorpið Eyrarbakki verði burðarásinn í dansk-íslensku sögu- og menntasetri þar sem ferðaþjónustan væri í öndvegi á sumrin en tekið væri á móti skólahópum á vetrum. Nú í janúar opnaði Lista og tungumálamiðstöðin HUX sem er hluti af væntanlegu setri og þróunarverkefni útfrá Listasmiðju barnanna frá því í sumar. Þar eru nú námskeið fyrir börn frá 5 ára aldri þar sem tungumál, listir og fjölmenning er í brennidepli. Nemendur munur reka Nytjamarkað og læra þannig umhverfisvernd í verki. Allur ágóði af þessum markaði rennur í sérstakan sjóð fyrir fátæk börn og eldri nemendur munu studdir til að vinna sjáfboðavinnu fyrir og með jafnöldrum sínum í öðrum löndum. Alþjóðleg samskipti eru hluti af náminu og mikil áhersla lögð á samskipti við nemendur í öðrum löndum. Einu sinni í mánuði höldum við alþjóðlegar kvöldsamkomur til að styrkja nýbúa á Íslandi. Þá munum við fela hverri þjóð að halda sína þjóðhátið og er það gert til að styrkja ímynd þeirra hér á landi og til að kynna menningu þeirra og siði fyrir hinum.
 
 HUX hlaut hæsta mögulega styrk Menningarráðs Suðurlands í haust og gerði okkur kleift að hefja starfið strax en áætlað er að opna kaffihúsið og handverksmarkaðinn aftur í mars.
 
Aldamótaþorpið sjálft er nú ´til í líkani og er til sýnis á Gónhól.  Í sumar er  opið inn í salinn og gestum gefst kostur á að fylgjast með framvindu verksins. Þarna er yfirbyggt þorp með opnum markaðstorgum og sölubásum, ýmist inni í húsum eða á steinilögðum strætum. Húsgaflarnir eiga að sýna húsbyggingarstíl Eyrarbakka og endurspegla það mikla mannlíf sem var þarna í fyrstu borg landsins.
 Þarna verða verslanir, banki, pósthús og verkstæði iðnaðarmanna, ýmist sem safngripir eða í fullum rekstri. Viðræður standa yfir við banka og sparisjóði um að koma inn með sína sögu og eins þarf að reka banka í gamla stílnum á staðnum. Á þessum tíma var sérstök mynt á Eyrarbakka og við ætlum að endurvekja hana. Í bankanum yrði þá afgreiðslumaður með der sem sæti á bak við glerlúgu og afgreiddi gesti með því að skipta yfir í þá mynt sem verður gjaldmiðillinn í Aldamótaþorpinu.
 
Pósthús yrði þarna með sérstakan stimpil og hægt væri að kaupa og póstleggja kort á staðnum og væru þau þá stimpluð af aldamótapósthúsinu. Möguleiki á að vera með sögusafn inni í pósthúsinu. Þórdís Þórðardóttir myndlistarkona er þekkt fyrir myndir sínar af húsunum á Eyrarbakka og hún er þegar farin að hanna póstkortin sem verða til sölu.
 
Lögð verður áhersla á samstarf við dansk-íslenska verslunarráðið. Dönsk áhrif á íslenska verslun, vöruval og menningu yrðu í forgrunni, þar með talið það mikilvægi sem Danir eiga í okkar matargerðarsögu. Þannig værum við með mjólkubúð með ostum og fleiri fínheitum, bakarí með dönskum vínarbrauðum og kökum og svo væru auðvitað danskar dömur að selja slikkerí eins og bolsjö og fleira góðgæti....og auðvitað krambúð sem vigtaði upp mjöl og seldi á pela til herramanna í kaupstaðarferðum. Sótt hefur verið um eitt bil fyrir ferðaskrifstofu sem vill vera þarna og selja dagsferðir um Ísland, lítið danskt brugghús vill opna þarna ölstofu með smörrebrauði, ljósmyndari íhugar að opna stofu og eins erum við í viðræðum við bókabúð eða ritfangverslun sem vill selja fjaðurpenna og blekbyttur.
 
Í austurhluta frystihússins er verkstæði. Þar er áætlað að hefjast strax handa í vetur og gera upp gamlan Ford í samstarfi við Sjóminjasafnið á Eyrarbakka. Í framhaldi af því mætti svo þróa opið verkstæði þar sem menn gætu kíkt ofan í húddin og jafnvel tekið til hendinni ef þeim byði svo við að horfa og fylgst með framvindu viðgerða á fornbíl.
 
Í framhaldi af verkstæðinu verður fornbílasýning þar sem hægt er að lifa sig inní söguna allt frá því Thomsenbíllinn kom á Bakkann í sinni einu ferð frá Reykjavík. Áfram verður lekkerum dömum og hattklæddum herrum boðið á rúntinn á heldri bílum um Eyrarbakka líkt og verið hefur í sumar og einnig verður hægt að láta taka af sér mynd í viðhafnarklæðnaði við bifreiðarnar. Þá verður boðið uppá bílaleigu heldri bíla en slíkir bílar hafa verið vinsælir í brúðkaup og aðrar fínni viðburði í lífi fólks.
 
Ljósmyndun og bifvélavirkjun eru ekki einu iðngreinarnar sem munu skapa sögu sinni sess í Aldamótaþorpinu. Allar iðngreinar munu fá sinn stað. Samkvæmt manntalinu 1910 voru 48 iðnaðarmenn búsettir á Eyrarbakka og störfuðu við 14 iðngreinar. Þannig mun verða söðlasmiður, úrsmiður, gullsmiður, skósmiður og skraddari, trésmiður, járnsmiður og skeifusmiður...svo eitthvað sé nefnt...og ekki má gleyma hattagerðarkonunni , prjónakonunni, saumakonunni og brúðugerðinni...
 
Eitt af meginatriðunum í aldamótaþorpinu er að huga að börnum og þörfum þeirra. Við tökum upp leiki og kennum börnum að meta það einfalda og heimatilbúna sem fólk bjó að áður en neysluþjóðfélagið okkar varð til. Það má nefna að ganga á stultum og danska boltaleikinn með 3 eða 4 bolta. Þarna verður hlutavelta, hægt að veiða pakka, hengja bakara og margt fleira en ekki þó hávær tívolítæki nema ef til vill ein lítil hringekja.
 
Hvað ungur nemur, gamall temur. Til að tengja saman kynslóðirnar og halda við gömlum fróðleik og hefðum, verða flestir starfsmenn í aldamótaþorpinu af eldri kynslóðinni og verða klæddir í anda aldamótanna og fram eftir 20.öldinni. Við innganginn mun gestum einnig verða boðið að leigja sér búninga oh taka þátt í leiknum. Starfið í aldamótaþorpinu verður fræðslumiðað og við viljum tryggja að það gamla verði virt og því viðhaldið af virðingu en þó á lifandi og skemmtilegan hátt. Þannig munu iðngreinarnar geta tekið á móti nemum í sínum greinum og verslanirnar bjóða uppá varning sem tengist gamla tímanum. Bókaverslun með gamlar bækur og skriftarkennslu þar kennt væri að munda fjaðurpenna við blekbyttuna er dæmi um þá framkvæmd.
 
Eins og áður sagði hefur þróast skemmtilegt mannlíf í Gónhól í sumar. Eldri borgarar og börn hafa unnið og leikið sér hlið við hlið. Það varð kveikjan að þessari hugmynd sem er kynnt hér og ætlunin er að opna að nýju næsta vor. Allri hönnun utanhúss er að verða lokið og viðræður við sérfræðinga í hinum ýmsu húsbyggingartegundum Eyrarbakka standa yfir.
 
Þorpið er fjölskylduverkefni og hefur verið byggt upp að mestu í sjálfboðavinnu okkar en að auki munum við safna saman gömlu efni og endurnýta allt sem við getum við uppbygginguna. Við höfum notið velvildar áhugafólks og velunnara sem hafa gefið okkur tíma sinn, útvegað efni , leiðbeint og stutt okkur ómetanlega. Einnig höfum við hlotið tvo góða styrki; Átak til atvinnusköpunar kvenna úthlutaði okkur 2 milljónum í lok ársins 2008 og árið 2009 fengum við sama styrk 2.000.000.  frá Menningarráði Suðurlands sem einnig veitti HUX, Lista- og tungumálamiðstöðinni styrk árið 2008.
Við höfum beðið Vinnumálastofnun um starfsmenn og erum í viðræðum um að fá að nýta okkur starfskrafta allra þeirra sem hafa áhuga á að koma að verkefninu, hvort sem það væri til að skrapa, mála, smíða eða rétta úr járni svo hægt sé að nota það aftur. Þegar Þorpið tekur til starfa munu síðan skapast 30 -50 störf og gert er ráð fyrir áframhaldandi uppbyggingu og atvinnusköpun á næstu árum.
 
Síðan í maí í fyrra höfum við haft nokkurn rekstur í húsinu og nú frá 1. maí verður opið kaffihús ásamt nytja og handverksmarkaði með grænmetistorgi þar sem við seljum vörur frá bændum og sjómönnum á Suðurlandi.
 Lista og tungumálamiðstöðin HUX verður með sumarnámskeið fyrir börn og fullorðna, myndlistarsýningar og listmunauppboð. Fornbílasýningar, tískusýningar og alls konar uppákomur verða í allt sumar.
 
Þorpið verður opið og þar gefst gestum kostur á að fylgjast með uppbyggingunni en þann 15. ágúst ætlum við halda Aldamótahátíð með Eyrbekkingum þar sem við munum kynna Þorpið fyrir fjölmiðlum, fjárfestum og öllum þeim sem áhuga kynnu að hafa á því að koma að þessu verkefni með okkur.
 
 
 
Með kærri kveðju
f.h. Gónhóls ehf á Eyrarbakka, Anna S. Árnadóttir Sími 894 2522
 netfang: www.annaarna@gmail.com
 
Hér má sjá fleiri myndir 
www.gonholl.is
www.hux.is